Hinsegin fræðsla – taktu þátt!

Nú er búið að opna fyrir umsóknir í hinsegin fræðsluteymi Samtakanna ’78 fyrir veturinn 2019-2020!

Hinsegin fræðarar Samtakanna ’78 eru ungt fólk á aldrinum 16-30 ára sem fræða annað ungt fólk á öllu landinu um hinsegin veruleikann. Þau fá þjálfun hjá Samtökunum ’78 sem sjá um skipulagningu fræðslunnar. Algengast er að unglingar í 8-10 bekk fái heimsókn frá fræðurum Samtakanna ’78 en einnig er nokkuð um heimsóknir í framhaldsskóla og svo allskonar aðra hópa. Þetta er sjálfboðaliðastarf sem krefst þónokkrar skuldbindingar en á móti kemur frábær félagsskapur, æfing í að tala fyrir framan fólk og svo er þetta einstaklega gefandi starf.

Hefur þú áhuga á að vera með? Segðu okkur aðeins frá sjálfu/m/ri þér og aldrei að vita nema þér verði boðið í hópinn!

Búið er að finna sjálfboðaliða fyrir haustönn 2019. Næst verður opnað fyrir sjálfboðaliða í janúar 2020 eða ágúst 2020. Fylgstu með!