Taktu þátt

Gerast félagi

Skráðu þig hér!

Samtökin ’78 fylgja lögum um persónuvernd og gætir þess að rétt sé farið með upplýsingar um félagsmenn.

Með því að skrá þig í samtökin veitir þú skrifstofu Samtakanna ’78 samþykki til að vinna með þær upplýsingar sem þú gefur upp. Aðeins starfsfólk skrifstofu og stjórn Samtakanna ’78 hafa aðgang að félagatali. Ítrustu varúðar er gætt við meðferð félagatalsins. Þú getur hvenær sem skráð þig úr Samtökunum ’78 og afturkallað samþykki þitt með því að senda póst á skrifstofa@gamli.samtokin78.is með nafni og kennitölu. Mikilvægt er að sá póstur sé sendur úr sama netfangi og þú gefur upp við skráninguna sjálfa.

Mikilvægt er að hafa í huga að það að villa á sér heimildir varðar við lög, hvort sem um er að ræða skráningu í Samtökin ’78 eða skráningu úr þeim.

Einnig er mikilvægt að Samtökin ’78 hafi skráð rétt netfang til að boða félaga á félagsfundi og aðalfundi, því biðjum við þig að athuga það sérstaklega.

Takk fyrir að gerast félagi Samtakanna '78

Við sendum þér greiðsluseðil fyrir félagsgjöldum í heimabanka.
Árleg félagsgjöld: Almennt gjald: 5.900 kr. Námsmenn, öryrkjar og eldri borgarar: 2.900 kr. Ungmenni undir 18 ára: 1.500 kr.