Smáríkið Brúnei hefur frá og með deginum í gær tekið upp lög sem heimila dauðarefsingar samkynhneigða karla. Samkynhneigð hefur áður verið bönnuð í Brúnei og viðurlögin við henni var hingað til tíu ára fangelsisvist, en með breytingunni eru viðurlögin dauðrefsing í formi grýtinga. Með lögunum er einnig heimilt að refsa samkynhneigðum konum og eru viðurlögin hýðingar eða allt að tíu ára fangelsisvist. Samtökin ‘78 taka skýra afstöðu gegn hverskyns ofbeldi, glæpavæðingu og mismunun sem snúa að jaðarsettum hópum þar á meðal vegna kyni, kynhneigð, kynvitund, kyntjáningu, kyneinkennum, þjóðerni, uppruna, trúarbrögðum, stjórnmálaskoðunum, fötlun eða öðrum mismununarbreytum. Samtökin ‘78 hvetja stjórnvöld að beita sér fyrir málinu á alþjóðlegum vettvangi og taka skýra afstöðu gegn mannréttindabrotum stjórnvalda í Brúnei. Ísland á nú sæti í mannréttindaráði Sameinuðu Þjóðanna sem er kjörinn vettvangur til að sýna það í verki að hvers kyns mannréttindabrot eru ekki liðin. Samtökin ‘78 vilja einnig hvetja öll til að sniðganga þau hótel sem eru í eigu soldánsins í Brúnei en þau eru: Hotel Bel-Air í Los Angeles, Bandaríkjunum The Beverly Hills Hotel, Beverly Hills, Bandaríkjunum The Dorchester, London, Bretlandi 45 Park Lane, London, Bretlandi Coworth Park, Ascot, Bretlandi Le Meurice, París, Frakklandi Hotel Plaza Athenee, París, Frakklandi Hotel Eden, Róm, Ítalíu Hotel Principe di Savoia, Mílanó, Ítalíu