13. Stjórnarfundur

13. fundur stjórnar
Starfsárið 2018-2019

9. febrúar 2019

Mætt: María Helga Guðmundsdóttir (formaður), Þorbjörg Þorvaldsdóttir (ritari), Þórhildur Elínardóttir Magnúsdóttir (alþjóðafulltrúi), Sigurður Júlíus Guðmundsson (gjaldkeri), Rúnar Þórir Ingólfsson (meðstjórnandi), Sólveig Rós (fræðslustýra), Daníel E. Arnarson (framkvæmdastjóri)
Fundargerð ritar: Þorbjörg

Fundur settur: 16:12

  1. Fundargerð 12. fundar samþykkt
    María Helga les fundargerð 12. fundar. Stjórn samþykkir fundargerð með smávægilegum breytingum.

Unnsteinn (varaformaður) kemur á fund: 16:22

2. Ársreikningur
Gjaldkeri leggur fram ársreikning félagsins og fjárhagsáætlun. Skjölin kynnt og stjórn ræðir þau.

3. Trúnaðarmál
Trúnaðarmál rætt. Fært í trúnaðarbók.

Sigurður Júlíus víkur af fundi: 17:12

4. Ársskýrsla
Rætt um gerð ársskýrslu fyrir aðalfund og hvernig samvinnu stjórnar og starfsfólks verður háttað.

5. Nafn Samtakanna hjá RSK
Stjórn samþykkir að breyta nafninu hjá RSK í Samtökin ‘78.

6. Erindi fyrrum formanna
Þorbjörg víkur af fundi: 17:20

Tillaga fyrrum formanna samþykkt.

Þorbjörg kemur á fund: 17:25

7. Frumvarp um kynrænt sjálfræði og herferð með Amnesty
María Helga fór yfir stöðuna. Frumvarp um kynrænt sjálfræði er komið inn á samráðsgátt Alþingis. Ráðuneytið hefur ákveðið að taka út ákvæði um inngrip á intersex börnum og leggja til að stofna starfshóp um slíkt ákvæði. Búið er að lýsa yfir eindregnum vilja Samtakanna til þess að þessi ákvæði væri haldið inni. Rætt um mikilvægi þess að þrýsta á að þetta ákvæði fari aftur inn í texta frumvarpsins. Von er á skýrslu alþjóðaskrifstofu Amnesty International um intersex málefni á Íslandi. Von á undirskriftasöfnun um allan heim, auk myndbanda til stuðnings trans og intersex réttindum. Einnig verðum við með herferð til stuðnings frumvarpinu.

Umræður um það hvernig við getum komið inn í umræðuna. Rætt um að halda annan samráðsfund með félagsfólki sem hefur hagsmuni af frumvarpinu.

8. Önnur mál
Þórhildur segir frá máli sem kom inn á hennar borð sem alþjóðafulltrúi.

Fundi slitið: 17:55