Fréttir

Kjörnefnd 2019 kallar eftir framboðum

English below

Aðalfundur Samtakanna ‘78 árið 2019 verður haldinn 3. mars næstkomandi í húsnæði Samtakanna ‘78 við Suðurgötu 3, 101 Reykjavík. Rétt til fundarsetu hefur allt skráð félagsfólk sem greitt hefur félagsgjöld fyrir árið 2019. Hægt er að skrá sig sem félaga hér. Félagsgjöld verða send út í síðasta lagi 30. janúar 2019.

Af þessu tilefni kallar kjörnefnd Samtakanna ‘78 eftir framboðum til formanns, stjórnar, trúnaðarráðs og skoðunarmanna reikninga. Einnig óskar kjörnefnd eftir ábendingum um áhugasama frambjóðendur.

Framboð til formanns og stjórnar, og varaframboð sé þess óskað, skulu berast á netfangið kjornefnd@gamli.samtokin78.is í síðasta lagi 17. febrúar 2019. Tilgreina skal hvaða embætti frambjóðandi sækist eftir. Varaframboð er valkvætt og tekur gildi nái viðkomandi ekki kjöri í tilsett embætti.

Þau sem bjóða sig fram til trúnaðarráðs og sem skoðunarmenn reikninga eru beðin að skila framboði sínu í tölvupósti til kjörnefndar fyrir aðalfund og tilgreina hvaða embætti þau sækjast eftir.

Kjörnefnd óskar eftir því að frambjóðendur til formanns, stjórnar og trúnaðarráðs svari nokkrum spurningum (sjá neðar) en svörin verða notuð við kynningu á framboðum.

Kosið verður í embætti formanns (til eins árs) og þrjú embætti í stjórn félagsins (til tveggja ára). Framboð til trúnaðarráðs (tíu embætti) og skoðunarmanna reikninga (tvö embætti) eru til eins árs.

Í grein 4.1. segir: „Stjórn samanstendur af formanni og 6 stjórnarmeðlimum. Stjórnarmeðlimir skipta með sér hlutverkum varaformanns, ritara, gjaldkera, alþjóðafulltrúa og tveggja meðstjórnenda.“ Trúnaðarráð er skipað 10 einstaklingum sem í sameiningu velja sér formann og áheyrnarfulltrúa á stjórnarfundi að loknum aðalfundi.
Til þess að tryggja fjölbreyttan hóp frambjóðenda, í samræmi við þann fjölbreytta hóp sem félagar Samtakanna ‘78 eru, hvetur kjörnefnd sérstaklega fólk á öllum aldri, af öllum kynþáttum, uppruna, líkamsgetu, menntun og bakgrunni til þess að bjóða sig fram í komandi kosningum.

Í kjörnefnd sitja:
Ásta Kristín Benediktsdóttir, formaður kjörnefndar
Álfur Birkir Bjarnason
Svanfríður Anna Lárusdóttir

Nánari upplýsingar um störf stjórnar og trúnaðarráðs má finna í lögum Samtakanna ’78. Einnig má hafa samband við kjörnefnd með því að senda póst á ofangreint netfang. Verklagsreglur kjörnefndar um framkvæmd kosninganna má nálgast hér.

Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar

Opnað hefur verið fyrir atkvæðagreiðslu utan kjörfundar. Kjörgengir félagsmenn (þeir sem hafa greitt félagsgjöld fyrir árið 2019) geta kosið á skrifstofu félagsins á opnunartíma skrifstofunnar þangað til aðalfundur hefst.

Kjörgengir félagsmenn geta einnig óskað eftir að fá kjörgögn send í pósti (kjörseðil/seðla, kjörseðilsumslag og sendiumslag) með því að hafa samband við skrifstofu Samtakanna (skrifstofa@gamli.samtokin78.is). Kjósandinn setur atkvæðið í kjörseðilsumslagið. Að því loknu leggur kjósandi kjörseðilsumslagið í sendiumslagið og lokar því vandlega. Aftan á sendiumslagið skal rita nafn kjósanda og kennitölu. Sendiumslagið skal stíla á: Samtökin ‘78, Suðurgötu 3, 101 Reykjavík.

Utankjörfundaratkvæði þessi þurfa að hafa borist Samtökunum ‘78 fyrir aðalfund. Kjósandi ber sjálfur ábyrgð á og kostnað af að koma atkvæði sínu til skila fyrir tilgreindan tíma. Ef einstaklingur greiðir atkvæði utan kjörfundar en mætir á aðalfund og greiðir atkvæði þá gildir það atkvæði, þ.e. það sem greitt er á aðalfundi, og skal atkvæðinu sem var skilað utan kjörfundar fargað.


– – – – –
Kjörnefnd óskar eftir því að frambjóðendur svari eftirfarandi spurningum og sendi mynd af sér með framboðinu:

  1. Spurningar fyrir alla frambjóðendur:
    1.1 Nafn og aldur
    1.2 Fyrri reynsla (t.d. menntun, starf, félagsstörf og þess háttar)
    1.3 Fyrri verkefni/störf innan Samtakanna ’78
  2. Spurningar fyrir frambjóðendur til formanns og í stjórn:
    2.1 Hvert er mat þitt á stöðu Samtakanna ’78 í dag og þeim verkefnum sem unnið hefur verið að á síðustu árum?
    2.2 Hver er þín sýn á starf Samtakanna ’78 næstu 2–3 ár og á hvaða sviði telur þú þig geta lagt mest af mörkum? (Hvaða verkefnum þarf að sinna, hverju hefur þú helst áhuga á að vinna að sem stjórnarmeðlimur, í hvaða aðgerðir þarf að ráðast og svo framvegis.)
    2.3. (Til frambjóðenda í stjórn) Í hvaða embætti innan stjórnar telur þú að kraftar þínir nýtist best?
  3. Spurningar fyrir frambjóðendur í trúnaðarráð:
    3.1 Hvernig sérð þú fyrir þér áherslur trúnaðarráðs starfsárið 2019–2020 og á hvaða sviði gagnast áhugi þinn, þekking og reynsla best? (Helstu verkefni, aðgerðir, o.s.frv.)
  4. Annað sem frambjóðandi vill koma á framfæri:

ENGLISH

The Election Committee Calls for Candidates

Election to the board and advisory council of Samtökin ‘78 will take place at Samtökin’s annual general meeting on March 3rd 2019 at Suðurgata 3, 101 Reykjavík. All registered members who have renewed their membership (paid fees for 2019) are welcome to take part in the meeting and the election. To register as a member of Samtökin ‘78 please click here.

The organisation’s election committee calls for candidates for positions as president, board members, advisory council members and auditors, and encourages members to suggest possible candidates.

Candidates for president and the board are asked to state which position they wish to run for, and an alternative position if they so wish, via email to kjornefnd@gamli.samtokin78.is no later than February 17th. Candidates can, but are not obliged to, state an alternative position they will run for if they are not elected for their chosen position.

Candidates for the advisory council and auditor positions are asked to inform the election committee which position they run for via email before the annual general meeting.

The election committee kindly asks all candidates to answer a few questions (see below) that will be used to introduce them on Samtökin ‘78’s website.

The annual general meeting votes for the following positions:
President (one year)
Three board members (two years)
Ten advisory council members
Two auditors

After the annual general meeting, the new board nominates a vice president, international secretariat, secretary, treasurer and two board members. The advisory council similarly chooses a chair and a board observer.

To help ensure a diverse group of candidates who reflect the diverse members of Samtökin ‘78 the election committee encourages members of all ages, ethnicities, origins, abilities and education backgrounds to run for the upcoming elections.

The election committee members are:
• Ásta Kristín Benediktsdóttir, chairman
• Álfur Birkir Bjarnason
• Svanfríður Anna Lárusdóttir

Further information about the board and advisory council of Samtökin ‘78 and their work can be found (in Icelandic) in the law of Samtökin ’78 on the organisation’s website, or by contacting the election committee (kjornefnd@gamli.samtokin78.is).

– – – – –

We kindly ask all candidates to answer the following questions and send a photo of themselves:

  1. Questions for all candidates:

1.1 Name and age

1.2 Past experience (e.g. education, work, volunteer work, etc.)

1.3 Past work/projects for Samtökin ‘78

  1. Questions for candidates seeking positions as president and on the board:

2.1 What is your view on Samtökin ‘78 and the work the organisation has been involved in in the past few years?

2.2 What is your vision for the future of Samtökin ‘78 and in which field/s do you think you will most be able to contribute? (What projects should be focused on, where do your interests lie within Samtökin ‘78, what actions must be taken, etc.)

2.3. (Candidates for the board) In which position on the board do you believe your talents will best be of use?

  1. Questions for candidates seeking advisory council positions:

3.1 What do you think the advisory council should focus on in the upcoming year, and how will your strengths benefit the council and Samtökin ‘78? (projects, actions etc.)

  1. Other information the candidate would like to share: