Samtökin ’78 óska eftir að ráða skrifstofustýri sem mun starfa á skrifstofu samtakanna ásamt framkvæmdastjóra og fræðslustýru. Skrifstofustýri yrði þriðja stöðugildi Samtakanna ’78 og verður ráðið í hálft starf. Auk þessara starfskrafta búa Samtökin ’78 yfir ríku sjálfboðaliðastarfi og sinna sjálfboðaliðar ýmsum verkefnum og koma að skipulagi viðburða. Helstu verkefni og ábyrgð Daglegur rekstur: Skrifstofustýri stýrir daglegum rekstri skrifstofu, svarar almennum erindum sem berast félaginu símleiðis eða í tölvupósti og kemur þeim í réttan farveg. Eins er skrifstofustýri viðstatt á opnunartíma skrifstofu, ber ábyrgð á stjórnun skjalavörslu og flokkun gagna, heldur utan um ráðgjafatíma og sinnir félagatali. Upplýsingar og samskipti: Skrifstofustýri er daglegur tengiliður félagsins við starfshópa, félagsfólk og almenning. Í þessu felst m.a. umsjón með birtingu efnis á samfélagsmiðlum og vef samtakanna, í samráði við framkvæmdastýri og stjórn. Einnig tekur skrifstofustýri þátt í gerð fréttatilkynninga. Félagsheimili: Skrifstofustýri ber ábyrgð á að yfirfara reglulega birgðastöðu veitinga og hreinlætisvara í Regnbogasal og sér um dagleg þrif og tiltekt. Einnig heldur skrifstofustýri utan um skipulagningu opinna húsa og annarra viðburða og sér um opið hús annan hvern fimmtudag í samvinnu við sjálfboðaliða. Menntunar- og hæfniskröfur Háskólamenntun sem nýtist í starfi. Góð þekking á sögu og þróun hinsegin samfélagsins og stöðu og þörfum þeirra ólíku einstaklinga sem það byggja. Framúrskarandi samskipta-, frumkvæðis- og skipulagshæfileikar. Mjög gott vald á íslensku og ensku. Þekking á sjálfboðastarfi og þjónustu er mikill kostur. Þekking á viðburðarstjórnun er kostur Bílpróf og aðgangur að ökutæki eru kostur. Umsókn, frestur og fylgigögn Umsóknarfrestur er til og með 20. júní 2018. Samtökin '78 fagna fjölbreytileika samfélagsins í sinni víðustu mynd og leitast í öllu starfi sínu við að vera fordómalaus vettvangur þar sem borin er virðing fyrir öllu fólki og því sköpuð tækifæri. Við hvetjum því alla til að sækja um – óháð kynhneigð, kynvitund eða -tjáningu, kyneinkennum, fötlun, þjóðerni, kynþætti eða öðrum þáttum. Umsókn, ásamt ferilskrá og kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir hæfni umsækjanda til að gegna stöðunni skulu send Daníel E. Arnarssyni, framkvæmdastjóra, á netfangið skrifstofa@gamli.samtokin78.is. Gert er ráð fyrir að ráða í stöðuna undir lok júní eða í byrjun júlí og að skrifstofustýri hefji störf 1. ágúst nk. Framkvæmdastjóri gefur allar nánari upplýsingar í sama netfangi. Fullum trúnaði heitið. Um Samtökin ‘78 Samtökin '78 eru hagsmuna- og baráttusamtök hinsegin fólks á Íslandi. Markmið félagsins er að hinsegin fólk sé sýnilegt og viðurkennt og njóti fyllstu réttinda í íslensku samfélagi. Þannig vilja samtökin byggja upp samfélag lífsgæða og hamingju fyrir okkur öll. Samtökin ‘78 vinna að markmiðum þessum með því: að skapa hinsegin fólki félagslegan og menningarlegan vettvang og styrkja þannig sjálfsvitund þess, samkennd og samstöðu um sérkenni sín. að vinna að baráttumálum hinsegin fólks, svo og fræðslu um reynslu þess og sérkenni, eftir þeim leiðum sem árangursríkastar þykja hverju sinni svo sem á vettvangi löggjafarvalds, í opinberu fræðslukerfi og í fjölmiðlum. að eiga samstarf við sambærileg samtök, hópa og áhugafólk hérlendis og erlendis sem stefna að sömu markmiðum; styðja önnur félagasamtök, sem vinna að mannréttindum, og afla stuðnings þeirra. Í þessu skyni halda Samtökin ‘78 úti fræðslustarfi, ungliðastarfi, ráðgjöf og stuðningi, fjölbreyttri menningar- og félagsstarfsemi, ásamt því að berjast fyrir mannréttindum og lífsgæðum hinsegin fólks allan ársins hring. Þessi starfsemi fer fram í félags- og menningarmiðstöð að Suðurgötu 3 í Reykjavík.