Fréttir

Könnun á skólaumhverfi

Samtökin '78 kynna stolt nýja rannsókn á skólaumhverfi hinsegin ungmenna!

Smelltu hér til að taka þátt í könnuninni.

Könnunin er unnin í samstarfi við GLSEN í Bandaríkjunum, Columbia háskóla og hinsegin félög víðsvegar um Evrópu og mun veita mikilvæga innsýn inn í líf og reynslu íslenskra hinsegin ungmenna í skólakerfinu. 

Við hvetjum öll hinsegin ungmenni á aldrinum 13-20 ára, og þau sem gætu verið hinsegin, til að taka þátt. 

Við erum Keiluhöllinni mjög þakklát en þrír þátttakendur í könnuninni hafa kost á því að vinna gjafabréf í keilu! 

Ef einhverjar spurningar vakna endilega hafið samband við fræðslustýru: fraedsla@gamli.samtokin78.is