Fréttir

Skemmtilegt launað hlutastarf í boði!

Ert þú rétta manneskjan til að standa vörð um Regnbogasal Samtakanna ‘78?

Samtökin ‘78 leita að réttu manneskjunni til að halda utan um húsnæði Samtakanna að Suðurgötu 3. Húsnæðið er í senn listagallerí, veislusalur og félagsheimili og það þarf trausta manneskju til að hafa umsjón með því að halda húsnæðinu hreinu, skipuleggja útleigur á veislusalnum og versla inn fyrir félagsheimilið. Um launað hlutastarf er að ræða.

Áhugasöm sendið póst á skrifstofa@gamli.samtokin78.isfyrir 19. maí 2017.