19. Stjórnarfundur

Stjórn Samtakanna ‘78

Starfsárið 2016 – 2017

19. fundur

Þann 28. febrúar 2017 var haldinn fundur á Stofunni, Aðalstræti. Fundinn sátu: María Helga Guðmundsdóttir – MHG, formaður. Álfur Birkir Bjarnason – ÁBB, varaformaður. Þórhildur Elínardóttir Magnúsdóttir – ÞEM, ritari. Kitty Anderson – KA, alþjóðafulltrúi, í gegnum Skype. Sigurður Júlíus Guðmundsson – SJG, meðstjórnandi.

Fundur settur 19:19

Samþykkja fundargerð síðasta fundar

Fundargerð er samþykkt

Útleiga á sal – Aldurstakmark

Aldurstakmark á útleigu á Regnbogasal skal vera 18 ára. Aldurstakmarkið er samþykkt einróma og einnig að bæta við aldurstakmarkinu í leigusamninginn.

Lögboðinn fundur stjórnar og trúnaðarráðs

MHG stingur upp á að seinasti sameiginlegi fundur stjórnar og trúnaðarráðs fyrir aðalfund verði með öðruvísi sniði. Lagt er til að keypt verði einhversskonar aðföng fyrir fundinn og að hann sé fremur þægilegur í sniðum.

Samantekt frá Möltu

MHG biður um að fá að fresta samantektinni þar til að Helga framkvæmdarstýra (hér eftir HBB) geti setið fund líka og tekið þátt. Annars var ferðin afar góð og náðu HBB og MHG að mynda ýmis tengsl og læra mikið. HBB ætlar að skrifa skýrslu um ferðina. KA leggur til að þessu máli sé frestað og að samantekt um Búkarest sé tekin á sama tíma.

Álag á laun starfsmanna í utanlandsferðum

Spurningar höfðu vaknað um álag á laun starfsmanna félagsins í utanlandsferðum á vegum ‘78. Ákvæði í kjarasamningum varðandi álagið voru yfirfarin og útlögðfyrir þá semsátu fundinn. Ekkert athugunarvert kom fram.

Starfslýsing húsvarðar

Lýsing á störfum húsvarðar er fínpússuð. Lýsingin nær yfir mánaðarleg verk og almennar skyldur húsvarðar Suðurgötunnar.

Starfslýsingin er samþykkt.

Aðgengi að gögnum á Borgarskjalasafni

Fulltrúi Borgaskjalasafnsins hafði samband við SR og bar upp fyrirspurn frá Sigurði Erni Guðbjörnssyni um aðgang að ljósmyndum Samtakanna ‘78. Stjórn sammælist um það að myndir af kröfu- og gleðigöngum og öðrum opinberum viðburðum skulu vera opinberar. Myndefni innan úr húsnæði Samtakanna ‘78 skal ekki vera opið. Ef einhver vafi leikur á hvort myndefnið sé af viðburði á almennum vettvangi eða ekki, þá skal myndefnið ekki vera opið.

Erindi og stefnuskrá frá Andrými

Stjórn skal kynna sér efni frá Andrými (sem er aðgengilegt á sameiginlegri Drive-möppu stjórnar) og verður málið tekið fyrir á næsta fundi.

Fundi slitið 20.21

Fundargerð ritaði Þórhildur Elínardóttir Magnúsdóttir