Fréttir

Umsókn um hagsmunaaðild að Samtökunum ’78

Stjórn barst eftirfarandi umsókn um hagsmunaaðild að samtökunum og verður hún lögð fyrir Aðalfund 2015:

Intersex-Ísland, kennitala: 690814-0990, óskar hér með eftir að gerast Hagsmunafélag Samtakanna ´78. Óskum við eftir að umsóknin sé lögð fyrir á Aðalfundi Samtakanna ´78 og hennar getið í fundarboðum skv:

„2.4. Félög tengd hagsmunum Samtakanna ’78 geta óskað eftir því að tengjast félaginu. Stjórninni er skylt að leggja slíka umsókn fyrir aðalfund og geta hennar í fundarboði. Til samþykktar á slíkri aðild þarf einfaldan meirihluta atkvæða á aðalfundi. Hagsmunafélög skulu hafa eigin kennitölu, sjálfstæðan fjárhag og koma fram opinberlega í eigin nafni en ekki nafni Samtakanna ’78.“
 
Tilgangur félagsins er að vinna að fullum mannréttindum intersex einstaklinga á íslandi, afnámi skurðaðgerða á kynfærum barna vegna félagslegra ástæðna og aukinni fræðslu í samfélaginu. Félagið var stofnað 27 júní 2014.
Nú þegar erum við meðlimir í Organisation Intersex International-Europe og liggur fyrir umsókn frá Intersex-Ísland um inngöngu í ILGA.