Fréttir

Upplestur á Menningarnótt

Heinz Heger

Mennirnir með bleika þríhyrninginn – Upplestur í IÐU, Lækjargötu kl: 16 á Menningarnótt

Guðjón Ragnar Jónasson les næstkomandi laugardag (Mennningarnótt) úr bókinni Mennirnir með bleika þríhyrninginn sem hann hefur nýlokið við að þýða. Bókin er merkileg heimild um líf samkynhneigðra í fangabúðum nasista og lætur engan ósnortinn og heitir á frummálinu, Die Männer mit dem rosa Winkel. Útgefandi er bókaútgáfan Sæmundur og Miðstöð íslenskra bókmennta styrkir útgáfuna. Þorvaldur Kristinsson ritar ítarlegan eftirmála að verkinu þar sem hann gerir grein fyrir því og setur það í samhengi sögunnar.

Sárafáir vitnisburðir hafa varðveist um líf samkynhneigðra í fangabúðum nasista og sagan um mennina með bleika þríhyrninginn er frægust þeirra minningabóka sem lýsa hlutskipti homma í Þriðja ríki Hitlers. Bókin kom fyrst út árið 1972 og hafði ómæld áhrif víða um lönd – á þeim árum þegar samkynhneigt fólk var að leita fortíðar sem að mestu hafði verið máð út úr mannkynssögunni.

Maðurinn að baki sögunni hét Josef Kohout, en dag einn í mars 1939 barði leynilögregla nasista, Gestapo, að dyrum á heimili hans í Vínarborg. Josef var handtekinn, ákærður fyrir „alvarlegan saurlifnað“ og dæmdur til þrælkunar, einn af þúsundum samkynhneigðra karla sem báru bleika þríhyrninginn í fangabúðum nasista. Þar þraukaði hann skelfilega vist í sex ár uns hann fékk frelsi í lok heimsstyrjaldarinnar síðari vorið 1945. Í tvo áratugi safnaði hann kjarki til að sigrast á sársaukanum og segja sögu sína – og það tókst honum að lokum

Saga mannanna með bleika þríhyrninginn er áhrifamikil frásögn af mannlegri grimmd og niðurlægingu. En hún er líka saga um mannlegt þrek og þolgæði, skráð af brennandi þörf til að miðla reynslu sem heimurinn vildi lengi ekkert af vita

Gagnrýni á bókina Mennirnir með bleika þríhyrninginn sem birtist á www.spassian.is