Ljúkum vetri og fögnum sumri í Regnbogasalnum! Opið hús og PubQuiz hjá Samtökunum '78 í kvöld, 24. apríl. Á morgun er sumardagurinn fyrsti svo í dag er gott tilefni til að gera sér glaðan dag (eða glatt kvöld jafnvel). Húsið opnar kl. 20:00 og PubQuizið hefst kl. 21:00. Quizið samanstendur af almennum fánýtum fróðleik með hinsegin twisti! Heitir og kaldir drykkir til sölu á staðnum. Sjáumst hress!