Aðalfundur Samtakanna ’78 fór fram að Laugavegi 3 fyrr í dag, 9. mars. Á dagskrá fundarins voru hefðbundin aðalfundarstörf samkvæmt lögum félagsins. Fundarstjóri var Þorvaldur Kristinsson og ritari Sigurlaug Brynja Arngrímsdóttir. Guðmundur Helgason, fráfarandi formaður stjórnar Samtakanna ’78, fór yfir starfsskýrslu ársins 2012-2013 og að því loknu kynnti Gunnlaugur Bragi, gjaldkeri, áritaða reikninga starfsársins sem hlutu staðfestingu aðalfundar. Á fundinum var kjörið í öll embætti í stjórn félagsins, en þau eru sjö talsins, auk þess sem tíu fulltrúar voru kjörnir í trúnaðarráð. Stjórn og trúnaðarráð Samtakanna ’78 2013-2014 eru sem hér segir: Stjórn S’78 2013-2014: Formaður: Anna Pála Sverrisdóttir Varaformaður: Sigurður Júlíus Guðmundsson Gjaldkeri: Vilhjálmur Ingi Vilhjálmsson Ritari: Svandís Anna Sigurðardóttir Meðstjórnendur: Fríða Agnarsdóttir, Guðrún Arna Kristjánsdóttir og Örn Danival Kristjánsson Trúnaðarráð S’78 2013-2014: Andri Sævar Sigríksson Arna Arinbjarnardóttir Auður Halldórsdóttir Auður Magndís Birna Hrönn Björnsdóttir Brynjólfur Magnússon Gunnar Helgi Guðjónsson Karitas Hrund Harðardóttir Karla Dögg Karlsdóttir Sverrir Jónsson