Slettum úr klafunum saman á jóla- og áramótaballi Samtakanna ’78.Við munum leggja undir okkur Laugaveg 73 eins og hann leggur sig! Fjörið fer fram bæði á Kjallaranum og Vínsmakkaranum auk þess sem portið þar á milli mun iða af hinsegin jólastuði. Húsið opnar kl. 22:00.DJ Dick&Dyke munu halda uppi stanslausu stuði með jólablönduðu vampíruþema, svo taktu fram jólasveinahúfuna og vampírutennurnar, því þetta verður LEGENDARY! FORSALA MIÐA ER HAFIN! Miðasala fer fram á skrifstofu Samtakanna ’78, Laugavegi 3 (opin milli kl. 13 og 17 virka daga fram að jólum) og á Kjallaranum.Í forsölu – 1.500 kr. almennt verðÍ forsölu – 1.000 kr. fyrir félagsmenn í Samtökunum ’78Við hurð 28. des – 2.000 kr. fyrir alla Allur ágóði af miðasölu rennur í fræðslu- og ráðgjafarstarf Samtakanna ’78.