ÞORLÁKSMESSUKÓSÝ Samtökin ´78 ætla að vera með opið í Regnbogasalnum á Þorláksmessukvöld frá kl 20:00 – 23:00. Heitt súkkulaði, piparkökur, eitthvað kælt og slakandi í kælinum, jólatónlistin á fóninum og kósýheitin svífandi yfir vötnum! Tilvalið að stinga sér aðeins inn á Laugavegsröltinu og drekka í sig hinsegin jólagleði. Kl:21:30 mun svo okkar yndislegi Vilhjálmur Ingi Vilhjálmsson mæta með gítarinn og færa okkur aðeins nær hinum sanna jólaanda með sinni fögru rödd. Sjáumst í jólaskapi á Þorláksmessu!