Jæja góðir hálsar – nú er sko komið að því! Hið árlega, sívinsæla og feikiskemmtilega jólabingó Samtakanna ’78 verður haldið í Vinabæ (Skipholti), föstudaginn 7. desember. Bingóið hefst kl. 20 (endilega mætið tímanlega) og að því loknu verður opið hús í Samtökunum (Laugavegi 3, 4 hæð) þar sem fjörið heldur áfram. (Það skal tekið fram að áfengi er ekki leyfilegt í Vinabæ – þó svo að um föstudag sé að ræða) Bingóstjórar verða hinir óútreiknanlegu Bingófélagar Árni Pétur Guðjónsson og Hrönn Tooth Svans. Meðal vinninga eru: • Flug með Wow air • Spjaldtölva frá Tölvulistanum • Ýmsir flottir bókavinningar • Fjölmörg glæsileg gjafabréf • Geisladiskar, dvd diskar, blöð og tímarit, jólatré, föt og skart …og margt – margt fleira! Komdu og skemmtu þér með okkur! – – – – – – – – – – – – – – – – – – – – – – – – – – – – – – Christmas Bingo! Samtökin ’78 will hold its annual Christmas bingo fundraiser on friday December 7th in Vinabær, Skipholt 33 at 20:00. The hosts are the ever fabulous Árni Pétur and Hrönn Svans, the prizes are breathtaking and the athmosphere wonderful.