Samtökin ´78 standa fyrir umræðufundi þriðjudagskvöldið 30. október 2012 um breytingar á Stjórnarskrá Íslands og kröfuna um að orðinu Kynvitund verði bætt í upptalningu jafnræðisreglunnar. Frummælendur eru:Valgerður Bjarnadóttir alþingismaður og formaður lögfræðinganefndarGuðmundur Helgason formaður Samtakanna ´78Ugla Stefanía Jónsdóttir stjórnarmaður í Trans Ísland og Samtökunum ´78 Fundarstjóri er Anna Pála Sverrisdóttir lögfræðingur Að loknum framsöguræðum verður opnað fyrir umræður Húsið opnar kl.20:30 og umræður hefjast kl.21:00 Hvetjum alla til að mæta og taka þátt í þessum mikilvægu umræðum!