Samtökin ´78 ætla að byrja vetrarstarf sitt með sannkölluðu Hausthúllumhæi laugardaginn 22. september 2012! Flóamarkaður og gleði að Laugavegi 3, fjórðu hæð! *Fjölskylduhjálp Íslands verður með glæsilegan vintage kjólamarkað, allt söluandvirði rennur óskipt til Fjölskylduhjálparinnar! * Listamenn verða með bása að selja verk sín! *Ýmsir aðilar munu selja allskonar varning; föt, skart, bækur, dvd, húsbúnað, húsgögn og margt fleira! *Guðdómlegar vöfflur og rjúkandi kaffi selt til styrktar S´78! *Bókasafn S´78 verður með sektar-og samviskubitslausan dag!Ef þú liggur á bókum, dvd eða öðru efni frá Bókasafninu okkar geturðu komið og laumað því í „nafnlausa“ kassann og sloppið við sektir og samviskubit 😉 *Húsið opnar kl: 12 og stendur gleðin til kl:17!