Blak fyrir alla, konur sem karla 🙂 Stelpurnar í KMK og strákarnir Styrmir hafa tekið höndum saman og ætla að æfa saman blak í vetur. Æfingarnar eru á mánudögum kl. 18:00 – 19:30 og miðvikudögum kl. 19:00 – 20:30 í íþróttasal Ölduselskóla (Breiðholti). Það er gengið inn um rennihurð neðan við húsið. Það eru allir velkomnir á þessar æfingar hversu mikil eða lítil sem blakkunnáttan er. Æfingin skapar meistarann 🙂 KMK og Styrmir