Nú styttist óðum í þjóðhátíð hinsegin fólks og undirbúningur er í fullum gangi. Styrktarböllin eru mikilvægur liður í fjáröflun hátíðarinnar og rík hefð í kringum þessi böll. Þetta eru einu styrktarböll Hinsegin daga í sumar svo nú er tækifærið til að draga upp dansskóna og styrkja málefni okkar allra. Við lofum hörkufjöri með DJ Glimmer bak við Dómkirkjuna og DJ Páli Óskari á okkar ylhýru Barböru. STRÁKABALL Barbara laugardaginn 10. júlí kl. 23 DJ Páll Óskar STELPNABALL Skólabrú laugardaginn 10. júlí kl. 23. DJ Glimmer Elektra tekur lesbíska tóna Aðgangseyrir 1000 kr. Styrkjum Hinsegin daga í Reykjavík