Vináttuleikur Styrmis og liðs þjóðþekktra einstaklinga 8. júní, 2010 Vináttuleikur Styrmis og liðs þjóðþekktra einstaklinga Dagsetning: 13. júní 2010 Tími: 16:00 – 19:00 Staður: Gervigrasvöllurinn í Laugardalnum (Þróttarvöllurinn) Lýsing Á sama tíma og fótboltalið þjóðríkja kljást um heimsmeistaratitilinn í Suður-Afríku 2010 hefur annað lið stillt sér upp til að berjast fyrir mannréttindum. 11 meðlimir Stand Up United verja mannréttindi víða um heim. Þau hafa sameiginleg markmið: jafnrétti, virðingu og réttlæti fyrir alla: http://www.amnesty.org/en/worldcup2010 Sýndu Stand Up United samstöðu með því að mæta á vináttuleik í knattspyrnu, sunnudaginn 13. júní klukkan 16:00 á gervigrasvellinum í Laugardal. Allir eru velkomnir. Ókeypis er á leikinn. Boðið verður upp heilmikla skemmtun: DJ Maísól þeytir skífum, Ari Eldjárn og Saga Garðarsdóttir verða með uppistand í leikhlé, og blöðrum dreift fyrir yngri kynslóðina. Ekki standa á hliðarlínunni. Sýnum samstöðu og fjölmennum á leikinn! Þeir einstaklingar sem leggja mannréttindum lið með fótafimi sinni eru: Halla Gunnarsdóttir liðsstjóri Anna Svava Knútsdóttir Ari Eldjárn Arnór Dan Atli Þór Albertsson Daníel Bjarnason Dj Margeir Gísli Örn Garðarsson Gulli Helga Gunnar Hansson Haraldur Ari Stefánsson Högni Egilsson Huldar Breiðfjörð Ilmur Kristjánsdóttir Jóhann G. Jóhannsson Jörundur Ragnarsson Lilja Nótt Þórarinsdóttir Logi Pedro Magni Ásgeirsson Örvar Smárason Óskar Jónasson Ragnar Kjartansson Saga Garðarsdóttir Sigmar Guðmundsson Sindri Már Sigfússon Þóra Arnórsdóttir Þóra Karítas Árnadóttir Þórður Jörundsson og fótboltalið Íþróttafélagsins Styrmis