Á fimmtudag, 26. mars, gengst heilbrigðisráðuneyti fyrir fundi um staðgöngumæðrun á Grand Hótel. Fundurinn hefst kl. 13 og er Vilhjálmur Árnason prófessor og stjórnarformaður Siðfræðistofnunar HÍ fundarstjóri. Dagskrá fundarins er með eftirfarandi hætti: Kl. 13.00 Setning Kl. 13.05 Ávarp Álfhildar Ingadóttur heilbrigðisráðherra Kl. 13.20 Guðríður Þorsteinsdóttir, sviðsstjóri lögfræðisviðs heilbrigðisráðuneytis og formaður vinnuhóps um staðgöngumæðrun kynnir áfangaskýrslu vinnuhópsins. Kl. 13.30 Er tímabært að heimila staðgöngumæðrun og þá með hvaða takmörkunum? Til máls taka: Reynir Tómas Geirsson, prófessor og yfirlæknir á kvennadeild Landspítala; Salvör Nordal, forstöðumaður Siðfræðistofnunar; Ragnheiður Elín Árnadóttir, alþingismaður; Sólveig Anna Bóasdóttir dósent í guðfræðilegri siðfræði við HÍ og Guðný Gústafsdóttir, kynjafræðingur og talskona Femínistafélags íslands Kl. 14:40 Kaffihlé Kl.15.00 Pallborðsumræður með framsögumönnum Kl.16.00 Almennar umræður