Framsóknarflokkurinn sendir frá sér ályktun um hjónabandslöggjöfina

Á flokksþingi Framsóknarmanna er lauk um síðustu helgi var eftirfarandi ályktun um hjónabandslöggjöfina samþykkt mótatkvæðalaust: „Mikilvægt er að samkynhneigðir njóti réttinda til jafns við aðra í samfélaginu. Rétt er að löggjöfin endurspegli ekki aðgreining gagnvart þeim. Því skal hafa eina hjónabandslöggjöf í landinu sem gildir fyrir alla“.

Á flokksþingi Framsóknarmanna er lauk um síðustu helgi var eftirfarandi ályktun um hjónabandslöggjöfina samþykkt mótatkvæðalaust:

„Mikilvægt er að samkynhneigðir njóti réttinda til jafns við aðra í samfélaginu. Rétt er að löggjöfin endurspegli ekki aðgreining gagnvart þeim. Því skal hafa eina hjónabandslöggjöf í landinu sem gildir fyrir alla“.

Það er ánægjulegt að sjá að framsóknarmenn styðja málflutning Samtakanna ´78 heilshugar. Kunnum við þeim bestu þakkir fyrir stuðninginn.