JANIS 27 Í ÍSLENSKU ÓPERUNNI 23. október, 2008 Janis 27 í íslensku óperunni er tónlistarhlaðið leikrit byggt á ævi og tónlist Janis Joplin. Höfundur leikritsins er Ólafur Haukur Símonarson. Hinar góðkunnu leikkonur Ilmur Kristjánsdóttir og Bryndís Ásmundsdóttir túlka söngkonuna í sýningunni í söng og tali, í leikstjórn reynsluboltans Sigurðar Sigurjónssonar. JANIS 27 Í ÍSLENSKU ÓPERUNNI – tónlistarhlaðið leikrit byggt á ævi og tónlist Janis Joplin – eftir Ólaf Hauk Símonarson Hin goðsagnakennda Janis Joplin lifnar við í nýju verki Ólafs Hauks Símonarsonar, Janis 27. Verkið byggir á stuttu en litríku lífshlaupi söngkonunnar, sem lést af völdum fíkniefnaneyslu aðeins 27 ára gömul árið 1970. Hrá og innblásin tónlist Joplin skipar stóran sess í verkinu og bregður fjögurra manna rokkband undir stjórn Jóns Ólafssonar sér í hlutverk hljómsveita Janisar Joplin á ferlinum. Hinar góðkunnu leikkonur Ilmur Kristjánsdóttir og Bryndís Ásmundsdóttir túlka söngkonuna í sýningunni í söng og tali, í leikstjórn reynsluboltans Sigurðar Sigurjónssonar. Leikmynd hannar Finnur Arnar Arnarsson, búninga hannar Þórunn E. Sveinsdóttir og lýsing er á vegum þeirra Björns Bergsteins Guðmundssonar og Páls Ragnarssonar. „Bryndís og Ilmur eru æði” – Gerður Kristný, Stöð 2 „Músíklega séð: Stórkostleg upplifun…Ég hélt ekki að það væri nokkur söngkona á Íslandi sem gæti gert þetta. Ég segi bara: Hallelúja! “ – Halla Sverrisdóttir, RÚV „Ég gleymdi alveg öllu…frábær söngur …flott skemmtun! – Þór Elís Pálsson, RÚV „Stuð í óperunni” – Ingibjörg Þórisdóttir, Mbl. „Dúndurmúsík!” – Páll Baldvin Baldvinsson, Fréttabl. Næstu sýningar:: Föstud. 24.okt.08; laugard. 1. nóv., föstud. 7.nóv., föstud. 14. nóv. föstud. 14. nóv.; laugard. 22. nóv. föstud. 28. nóv. Sýningarnar hefjast kl. 20.00 Miðasala Íslensku óperunnar er opin frá kl. 14 – 18 alla daga og símasala er frá kl. 10.00 virka daga. Nánari upplýsingar um Janis 27 og netsölu er að finna á vef Óperunnar www.opera.is Miðaverð fyrir hópa, þ.e. 20 manns eða fleiri eru 2.900.- Ath! Miðaverð fyrir 25 ára og yngri er 1.750.- ( Almennt miðaverð á Janis er kr. 3.500.- stúkusæti 4.500.- ) Nánari upplýsingar um hópferð í Óperuna er að fá hjá Eddu Jónasdóttur. Með kærri kveðju Edda Jónasdóttir, Starfsmaður markaðssviðs Óperunnar, edda@opera.is. Beinn sími: 562-1077