Q – FÉLAG HINSEGIN STÚDENTA FUNDUR 15. OKT KL. 20 14. október, 2008 Áhugasamir óskast til starfa hjá Q – Félagi Hinsegin Stúdenta Breytingar í stjórn Q – Félagi Hinsegin Stúdenta (áður FSS) Um mánaðarmótin tók nýr formaður við embætti. Aldís Þorbjörg Ólafsdóttir hefur tekið við af Brynjari Smára Hermannssyni sem formaður félagsins. Talsverðar breytingar eru í gangi um þessar mundir hjá félaginu og auglýsir því Q nú eftir áhugasömu fólki í stjórn. Ef þú hefur áhuga á að vera með í stjórn félagsins getur þú haft samband með því að senda tölvupóst á gay@hi.is eða hringja í síma 661-6492. Næstkomandi miðvikudag, 15. október, verður opin stjórnarfundur og hvetjum við alla sem hafa áhuga á félaginu að mæta kl. 20:00 uppá skrifstofu félagsins: Hitt Hús, Pósthússtræti 3-5 101 Rvk. Þetta er frábær leið til að hafa áhrif á starfsemi félagsins, endilega láttu heyra í ÞÉR! „Q – Queer by nature, fabulous by choice…“