OPNI SAMTAKADAGURINN 2008 2. október, 2008 Opni Samtakadagurinn 2008 verður haldinn í Regnbogasal Samtakanna ´78 laugardaginn 4. október kl. 13 – 17. Allir félagsmenn eru hvattir til þess að mæta og taka þátt í umræðum fundarins. Opni Samtakadagurinn 2008 verður haldinn í Regnbogasal Samtakanna ´78 laugardaginn 4. október kl. 13 – 17. Allir félagsmenn eru hvattir til þess að mæta og taka þátt í umræðum fundarins. Dagskrá fundarins verður annars sem hér segir: Ávarp formanns. Framkvæmdastjóri kynnir nýjar áherslur í starfsemi Samtakanna ´78. Skemmtiatriði. Kaffi, bakkelsi og almennt spjall. Félagaþing; þar sem að félagsmönnum gefst kostur á að leggja fram spurningar fyrir stjórn Samtakanna ´78 eða koma með tillögur og ábendingar um það sem betur mætti fara í starfsemi félagsins. Guðjón R. Jónasson mun stýra umræðum þingsins.