SAMTAKABALL Á CAFE VICTOR

Samtökin ´78 efna til dansleiks á Cafe Victor laugardaginn 4. október og hefst fjörið kl. 23.00. Dansað verður fram eftir nóttu við skífuþeytingar Andreu Jónsdóttur & DJ Þóris.

Forsala aðgöngumiða á Samtakaballið fer fram í félagsmiðsstöð Samtakanna 78. Öllum miðum seldum í forsölu fylgir jafnframt 2/1 tilboð á kaffihúsi Samtakanna. 

 

Almennt miðaverð er kr. 1.500,- en félagsmenn fá aðgöngumiða á kr. 1.000,- gegn framvísun gildra skírteina.