SAMTÖKIN ´78 OG ÁRBORG SKRIFA UNDIR ÞJÓNUSTUSAMNING TIL ÞRIGGJA ÁRA 17. september, 2008 Það er Samtökunum ´78 ánægjuefni að tilkynna undirritun þjónustusamnings við Árborg. Samningurinn gildir næstu þrjú árin. Það er Samtökunum ´78 ánægjuefni að tilkynna undirritun þjónustusamnings við Árborg. Samningurinn gildir næstu þrjú árin og munu Samtökin ´78 annast fræðslu fyrir nemendur efstu bekkjardeilda grunnskóla Árborgar. Ennfremur munu Samtökin ´78 sjá um skipulagða fræðslu fyrir fagaðila hjá Árborg svo sem fyrir kennara, leikskólakennara, skólahjúkrunarfræðinga, félags- og námsráðgjafa og fleiri hópa sem sinna félagslegum stuðningi og ráðgjöf. Íbúum Árborgar stendur einnig til boða viðtöl hjá ráðgjöfum Samtakanna ´78. Þessi viðtöl fara fam á í félagsmiðstöð Samtakann og eru íbúum Árborgar að kostnaðarlausu.