BEARS ON ICE

BEARS ON ICE fer fram um næstu helgi, 11.-14. september. Þetta er fjórða árið í röð sem viðburðurinn fer fram hér á landi.

BEARS ON ICE fer fram um næstu helgi, 11.-14. september. Þetta er fjórða árið í röð sem viðburðurinn fer fram hér á landi. Meðal þess sem er á dagskrá er er opnunarpartý í Samtökunum ‘78 á fimmtudagskvöldið, hvalaskoðun á föstudaginn, partý í MSC á föstudagskvöldinu, ferð í Bláa Lónið á laugardeginum og dansleikur á laugardagskvöldinu. Hátíðin endar svo með sunnudagsbröns á Jómfrúnni.

Stórdansleikur á 22
Laugardaginn 13. september verður stórdansleikur á 22 til styrktar fótboltafélaginu Styrmi sem stendur fyrir alþjóðlegu knattspyrnumóti í Reykjavík næsta vor. Dansleikurinn er opinn öllum. Plötusnúður er Dj Ben sem kemur frá London en hann  hefur spilað á öllum þekktustu GAY skemmtistöðum Lundúnaborgar s.s. Heaven, Ultra, Matinee, Chunk, Dirty Fairy and Crash.

Allir karlmenn sem vilja skemmta sér í góðum félagsskap eru hvattir til að mæta á BEARS ON ICE. Opið hús í Samtökunum ’78 á fimmtudagskvöldið. Sérstakt 2 fyrir 1 tilboð í Hvalaskoðum á föstudaginn fyrir karlmenn sem eru félagar í Samtökunum ’78 og MSC.

Allar nánari upplýsingar eru á vef BEARS ON ICE, www.gayice.is/boi