1. Stjórnarfundur 6. mars, 2019 Starfsárið 2019-2020 6. mars 2019 Mætt: Rúnar Þórir Ingólfsson, Unnsteinn Jóhannsson, Rósanna Andrésdóttir, Þorbjörg Þorvaldsdóttir, Sigurður Júlíus Guðmundsson Fundur settur: 20:05 1. Skipting embætta innan stjórnar Stjórn ræddi óskir sínar um embætti, en ákveðið var að bíða með endanlega stjórnarskipan þar til trúnaðarráð hefur skipað meðlim í stjórn. 2. Skriflegar verklagsreglur Farið stuttlega yfir starfsreglur stjórnar frá 2018-2019. Ákveðið að formaður sendi þær á stjórnarmeðlimi til yfirferðar fyrir næsta fund stjórnar, þar sem ákveðið yrði endanlegt form þeirra fyrir starfsárið 2019-2020. Rætt um samskipti innan stjórnar og um áframhald Slack-rásar Samtakanna ‘78. Ákveðið að halda áfram með Slack a.m.k. að sinni, en fá mögulega kynningu á öðrum kostum. 3. Dagskrá starfsársins Fimmtudagskvöld henta stjórn best eins og er a.m.k. og rætt um að funda á þriggja vikna fresti. Formanni falið að klára dagskrá funda fyrir næsta fund þar sem hún verður samþykkt. 4. Jafnvægi vinnuframlags Talað um mikilvægi þess að stjórn sé í tengslum við starfið. Stjórn beri ábyrgð á starfinu. Við höfum þetta í huga. 5. Afmælisritið Formaður fór yfir stöðuna á afmælisritinu. 6. Lagafrumvörp: Staðan Formaður fór yfir stöðuna á þeim lagafrumvörpum sem liggja fyrir. Frumvarp um kynrænt sjálfræði er væntanlegt inn á þing í byrjun næstu viku. Rætt um að stefna fólki á pallana þegar umræða fer fram í þinginu og virkja hópinn sem myndaður hefur verið á Facebook í þeim tilgangi. Frumvarp um hatursorðræðu. Formaður sagði frá viðbrögðum S78 við því. Stofnaður hefur verið aðgerðarhópur og fulltrúar hinna ýmsu félaga boðaðir á fund á Suðurgötu til þess að samhæfa viðbrögð sín við frumvarpinu. Stefnt er á sameiginlega yfirlýsingu. 7. Önnur mál Engin önnur mál. Fundi slitið: 21:35