8. Stjórnarfundur 14. september, 2018 Fundargerð 8. fundur stjórnar Starfsárið 2018-2019 14. september 2018 Fundur haldinn að Suðurgötu 3 Fundargerð ritar: Þorbjörg Mætt: Brynjar, Heiðrún, Unnsteinn, María, Daníel, Marion, Þorbjörg, Rúnar Fundur settur: 16:15 1. Aktívistaskóli Sólveig Rós, Heiðrún og Sigurður Júlíus munu funda um þetta í næstu viku og stjórn fær upplýsingar á næsta stjórnarfundi. 2. Hlutverkaskipting stjórnar Farið var yfir hlutverkaskiptingu innan stjórnar. Ný hlutverkaskipan samþykkt: Sigurður Júlíus verður gjaldkeri. Unnsteinn verður varaformaður. Þórhildur verður alþjóðafulltrúi. Rúnar verður meðstjórnandi. 3. Ársþriðjungsuppgjör Daníel segir frá því að ársþriðjungsuppgjörið er komið inn á vefsvæði stjórnar. Allt lítur vel út og fjárhagurinn er samkvæmt áætlun. Sérfræðikostnaður er hærri en lagt var upp með sökum kostnaðar við bókara. Daníel er með í skoðun að finna nýja bókhaldsþjónustu. Daníel óskar eftir því að stjórn skoði skjalið vel og komi með athugasemdir og fyrirspurnir varðandi fjármálin. Athugasemd færð í trúnaðarbók Sigurður Júlíus kemur á fund 16:26 4. Fært í trúnaðarbók 5. Sjálfboðaliðastefna og fylgiskjöl Daníel kynnir drög að sjálfboðaliðastefnu og fylgiskjöl með henni (siðareglur o.s.frv.). Umræða um útfærslu á stefnunni. María Helga leggur til að við leggjum stefnuna fyrir trúnaðarráð og óskum eftir athugasemdum og berum hana upp til samþykktar á næsta fundi stjórnar og trúnaðarráðs. Stjórn samþykkir það. 6. Sundlaugaaðgengi – stutt skýrsla María Helga segir frá stöðunni í þessum málaflokki. Stofnað hafi verið til starfshóps á vegum Reykjavíkurborgar. Fræða þarf starfsmenn sundlauga sem og sundlaugagesti. Frestur til að skipa í starfshóp rennur út 20. september og María Helga óskar eftir því að vera fulltrúi Samtakanna á þeim vettvangi. Rúnar víkur af fundi 17:53 7. Frumvarp Þingmálaskrá Alþingis er komin fram og beðið verður með frumvarp um kynrænt sjálfræði fram í febrúar. 8. Fundargerð 7. fundar samþykkt María Helga las fundargerð 7. fundar fyrir stjórn og var hún samþykkt með einni efnislegri athugasemd. 9. Önnur mál Daníel: Mál frá ráðgjafa. Ákveðið að tala um ráðgjöfina á næsta fundi. Brynjar víkur af fundi 18:37 María Helga og Marion: Staða afmælisrits. Horfur góðar, en mikil vinna framundan. Fundi slitið: 18:46