Á síðasta fundi stjórnar Samtakanna ’78 báru nokkrir stjórnarmeðlimir upp tillögu um að endurskoða hlutverkaskipan stjórnar. Eftir stuttar umræður náði stjórn samkomulagi um að skipta með sér hlutverkum upp á nýtt að hluta. Ný stjórn lítur því svo út: María Helga Guðmundsdóttir, formaður Unnsteinn Jóhannsson, varaformaður (áður alþjóðafulltrúi) Þorbjörg Þorvaldsdóttir, ritari Sigurður Júlíus Guðmundsson, gjaldkeri (áður varaformaður) Þórhildur Elínardóttir Magnúsdóttir, alþjóðafulltrúi (áður meðstjórnandi) Rúnar Þórir Ingólfsson, meðstjórnandi (áður gjaldkeri) Marion Lerner, meðstjórnandi