Hinsegin dagar eru á næsta leyti og líkt og síðustu ár mun Suðurgata 3 hýsa Hinsegin Kaupfélagið á meðan á hátíðinni stendur. Vegna þessa verður rask á opnunartíma skrifstofu Samtakanna '78. Við minnum á tölvupóstinn skrifstofa@gamli.samtokin78.is en þar er hægt að ná á starfsfólk á meðan skrifstofan er lokuð yfir Hinsegin daga – Reykjavík Pride. Áætlað er að skrifstofan loki föstudaginn 3. ágúst og opni aftur mánudaginn 13. ágúst.