19. Stjórnarfundur 9. janúar, 2018 Stjórn Samtakanna ‘78 Starfsárið 2017 – 2018 19. fundur Þann 9. janúar 2018 var haldinn fundur að Suðurgötu 3 kl. 17:30. Fundinn sátu: María Helga Guðmundsdóttir – MHG, formaður. Sigurður Júlíus Guðmundsson – SJG, varaformaður. Benedikt Traustason – BT, gjaldkeri. Álfur Birkir Bjarnason – ÁBB, ritari. Kitty Anderson – KA, alþjóðafulltrúi. Guðmunda Smári Veigarsdóttir – GSV, meðstjórnandi. Þórhildur Elínardóttir Magnúsdóttir – ÞEM, meðstjórnandi. Marion Lerner – ML, áheyrnarfulltrúi trúnaðarráðs í stjórn. Daníel Arnarsson – DA, framkvæmdastjóri. Sólveig Rós – SR, fræðslustýra. Fundur settur 17:40 1. Fundargerðir síðustu funda Fundargerðir funda 10, 17 og 18 samþykktar. 2. Dagsetning aðalfundar Aðalfundur Samtakanna ‘78 árið 2018 verður haldinn sunnudaginn 4. mars. 3. Sjálfboðaliðastefna DA mun setja saman skjal sem gerir sjálfboðaliðastarfi félagsins góð skil. 4. Fimmtudagsopnanir – aðkoma stjórnar Stjórnarmeðlimir stefna að því að létta undir fimmtudagsopnunum og skrá sig hvert og eitt á eitt opið hús. 5. Annar fundur stjórnar og trúnaðarráðs MHG talar við formann trúnaðarráðs og skipuleggur sameiginlegan fund stjórnar og trúnaðarráðs fyrir aðalfundinn 4. mars. 6. Félagsgjöld Almenn félagsgjöld árið 2018 verða 5.900 kr. en afsláttargjald fyrir námsmenn, aldraða og öryrkja 2.900 kr. og afsláttargjald fyrir börn yngri en 18 ára 1.500 kr. 7. Samningar við Reykjavíkurborg Munnleg skýrsla DA vegna samningaviðræða. Viðræðurnar eru langt komnar 8. Afmælislogo, heimasíða og endurmörkun DA hefur fjármagnað og hafið ferli vegna ofangreindra atriða. 9. Félagsskírteini DA er að safna saman afsláttum frá fyrirtækjum til að hafa á félagsskírteinum. 10. Önnur mál a) Leiklistarnámskeið DA athugar hvort grunndvöllur sé til að halda 6-8 skipta leiklistarnámskeið í húsnæði S78. b) EMIS-könnun S78 taka þátt í EMIS-könnun á kynhegðun og kynheilsu karla sem sofa hjá körlum, hana þarf að auglýsa. c) Staðan á frumvarpinu og áætlanir um að leggja það fram? Frestað d) Nefnd um skráningu ofbeldis, einelstis og haturglæpa Frestað e) Skráningaeyðublöð – Fræðsla & Ráðgjöfð Frestað f) Ég er ég myndbönd Stefnt að því að birta flest myndböndin í mars og apríl. g) Munnleg skýrsla um aðfangadagsviðburð Fundi slitið 18:30 Fundargerð ritaði Álfur Birkir Bjarnason