18. Stjórnarfundur 21. desember, 2017 Stjórn Samtakanna ‘78 Starfsárið 2017 – 2018 18. fundur Þann 21. desember 2017 var haldinn fundur að Engjateigi kl. 17:30. Fundinn sátu: María Helga Guðmundsdóttir – MHG, formaður. Sigurður Júlíus Guðmundsson – SJG, varaformaður. Benedikt Traustason – BT, gjaldkeri. Álfur Birkir Bjarnason – ÁBB, ritari. Sólveig Rós – SR, fræðslustýra. Fundur settur 17:40 1. GLSEN SR, MHG, DA og fleiri hittast innan skamms og ræða hvernig könnun GLSEN verði kynnt. 2. Námskeið jafningjafræðara Umræður um jafningjafræðslunámskeið í janúar og þátttakendur af landsbyggðinni. Stefnt er að því að afla fjármagns til að auðvelda þátttöku félagsmanna af landsbyggðinni. 3. Ritstjóri 40 ára afmælisrits Formanni gefið umboð til að ráða ritstjóra 40 ára afmælisrits S78 skv. meðmælum afmælisnefndar til stjórnar. 4. Fjármögnun afmælisrits MHG, DA og tilvonandi ritstjóri afmælisrits munu ræða fjármögnun ritsins. Fundi slitið 18:00 Fundargerð ritaði Álfur Birkir Bjarnason