3. Stjórnarfundur 20. apríl, 2017 Stjórn Samtakanna ‘78 Starfsárið 2017 – 2018 3. fundur Þann 20. apríl 2017 var haldinn fundur að Suðurgötu 3 kl. 17:20. Fundinn sátu: María Helga Guðmundsdóttir – MHG, formaður. Benedikt Traustason – BT, gjaldkeri. Álfur Birkir Bjarnason – ÁBB, ritari. Þórhildur Elínardóttir Magnúsdóttir – ÞEM, meðstjórnandi. Marion Lerner – ML, áheyrnarfulltrúi trúnaðarráðs í stjórn. Helga Baldvins- Bjarnadóttir – HBB, framkvæmdastýra. Fundur settur 17.23 1. Fundargerð síðasta fundar Fundargerð annars fundar samþykkt. 2. Framkvæmdir Framkvæmdir á húsnæðinu ræddar. HBB heldur utan um og skipuleggur í framhaldinu. 3. Bókakaupasjóður S78 – erindi frá Svandísi Önnu. Aðgangur að Gegni kostaði 140.000 kr. Þegar honum var sagt upp var hugmynd að sá peningur færi í bókakaupasjóð. Farið verður yfir hugmyndina í samhengi við önnur fjármál félagsins. Marion Lerner gengur af fundi 17:58 4. Málþing um hatursorðræðu HBB skipuleggur málþing um hatursorðræðu í samstarfi við Lagastofnun HÍ á alþjóðlegum degi gegn hinseginfóbíu 17. maí. 5. Fjölmiðlaþjálfun Frestað 6. Almannaheill HBB fer á ráðstefnu Almannaheilla í næstu viku. Önnur mál: 7. Aðalfundur Öldrunarráðs BT sér um að manna og skipuleggja viðveru okkar á aðalfundi Öldrunarráðs. 8. Staða húsvarðar Fært í trúnaðarbók Fundi slitið 18:35 Fundargerð ritaði Álfur Birkir Bjarnason