2. Stjórnarfundur 6. apríl, 2017 Stjórn Samtakanna ‘78 Starfsárið 2017 – 2018 2. fundur Þann 6. apríl 2017 var haldinn fundur að Suðurgötu 3 kl. 17:20. Fundinn sátu: María Helga Guðmundsdóttir – MHG, formaður. Sigurður Júlíus Guðmundsson – SJG, varaformaður. Benedikt Traustason – BT, gjaldkeri. Álfur Birkir Bjarnason – ÁBB, ritari. Kitty Anderson – KA, alþjóðafultrúi. Þórhildur Elínardóttir Magnúsdóttir – ÞEM, meðstjórnandi. Marion Lerner – ML, áheyrnarfulltrúi trúnaðarráðs í stjórn. Fundur settur 17.20 1. Fundargerð síðasta fundar Fundargerð fyrsta fundar samþykkt 2. Erindi frá Andrými MHG skrifar uppkast að svari til Andrýmis vegna aðkomu S78 að rýminu. Við munum leggja áherslu á mikilvægi þess að félagasamtök eigi sér samastað og að við lítum framlag Andrýmis á því sviði jákvæðum augum, þótt Samtökin muni ekki koma skipulega að starfseminni. Við verðum þó opin fyrir samstarfi vegna afmarkaðra verkefna. 3. Aðgengi að upplýsingum á erlendum málum SJG og HBB munu sækja um styrk til að þýða efni vefsins og bæklinga með það að leiðarljósi að auðvelda fólki af erlendum uppruna að nálgast upplýsingar um samtökin og stöðu hinsegin fólks á Íslandi. 4. Staða húsvarðar Starfslýsing húsvarðar lesin yfir og uppfærð María Helga Guðmundsdóttir gengur af fundi 18:50 5. Skriflegar starfsreglur Frestað 6. Starfsáætlun stjórnar 2017–2018, drög Frestað 7. Bókakaupasjóður S78 – erindi frá Svandísi Önnu Frestað 8. Stefna í alþjóðamálum Frestað 9. Fjölmiðlaþjálfun Frestað Önnur mál: 10. Leitavélabestun og staða vefsíðu Samtakanna ‘78 Vefsíðuna þarf að ræða í samhengi við mögulega rit- og vefnefnd. Fundi slitið 18:55 Fundargerð ritaði Álfur Birkir Bjarnason