18. Stjórnarfundur 17. febrúar, 2017 Stjórn Samtakanna ‘78 Starfsárið 2016 – 2017 18. fundur Þann 17. febrúar 2017 var haldinn fundur að Suðurgötu 3 kl. 17:00. Fundinn sátu: María Helga Guðmundsdóttir – MHG, formaður. Benedikt Traustason – BT, gjaldkeri. Álfur Birkir Bjarnason – ÁBB, ritari. Guðmunda Smári Dísuson Veigarsdóttir – GSV, meðstjórnandi. Sigurður Júlíus Guðmundsson – SJG, meðstjórnandi. Erica Pike – EP, áheyrnarfulltrúi í stjórn. Helga Baldvins- Bjargardóttir – HBB, framkvæmdastýra. Sólveig Rós – SR, fræðslustýra. Fundur settur 17:10 1. Samþykkt fundargerða 12, 16 og 17 Fundargerðir samþykktar. 2. Stjórn skiptir með sér embættum ÁBB skipaður varaformaður. Þórhildur Elínardóttir Magnúsdóttir skipuð ritari símleiðis. 3. Tillögur lagabreytinganefndar Stjórn mun leggja fram tillögur lagabreytinganefndar óbreyttar og mun undirbúa þær til framsetningar. Ákveðið að kynna almenn fundarsköp fyrir aðalfund. 4. Pistill Álfs af HIV-námskeiði Álfur kynnti ferð sína til ILGA – Europe á HIV-námskeið. 5. Pistill af Samtakamætti Skipulagsmál Samtakamáttarins verða yfirfarin með sjálfboðaliðum á morgun, laugardaginn 18. febrúar. Stjórn telur fundinn almennt hafa gengið vel. 6. Skipulag félagsfundar Félagsfundur verður haldinn þriðjudaginn 28. febrúar. Á dagskrá eru kynning og umræður um lagabreytingarillögur og erindi Íslenskrar Erfðagreiningar til undirbúnings fyrir aðalfund. 7. Skipulag aðalfundar Stefnt er að því að halda aðalfund í húsnæði S’78, Suðurgötu 3, en SR mun skoða aðra sali. MHG og HBB munu finna hæfan fundarstjóra og fundarritara. HBB mun í samráði við kjörnefnd ganga úr skugga um að frambjóðendur séu gildir félagar áður en aðalfundur hefst. 8. Ársskýrsla og ársreikningar – undirbúningur MHG leiðir skrif ársskýrslu en vinnunni verður dreift á þá aðila sem eru í forsvari fyrir hvern kafla. Frekari umræða verður á Facebook. BT ber ábyrgð á gerð ársreiknings, með EP innan handar. 9. Ákvarðanir varðandi veislusal, uppgjör og innkaup Tökum saman starfslýsingu og ákvarða tímafjölda fyrir húsvörð og metum laun fyrir þá vinnu. (GSV og Fríða, ásamt HBB) 10. Hvernig reiknast vinnuframlag starfsfólks í utanlandsferðum? ÁBB athugar hjá stéttarfélögum en lið annars frestað. Fundi slitið: 18:10 Fundargerð ritaði Álfur Birkir Bjarnason