Félagsfundur verður haldinn þriðjudaginn 28. febrúar kl. 17:30-19:00 í húsnæði Samtakanna ‘78 að Suðurgötu 3. Efni fundarins er tvíþætt: 1. Tillögur lagabreytinganefndar verða kynntar. Lagabreytinganefnd hefur starfað síðan á haustmánuðum og er með tillögur að lagabreytingum sem verða lagðar fyrir aðalfund 18. mars. 2. Erindi frá Íslenskri erfðagreiningu. Samtökunum hefur borist beiðni frá Íslenskri erfðagreiningu um samstarf við rannsókn á erfðafræðilegum grundvelli kynhneigðar. Á félagsfundinum munu fara fram umræður um erindið. Kosningar um erindið munu fara fram á aðalfundi. Fundurinn er opinn öllum gildum meðlimum Samtakanna ‘78. Hægt verður að ganga frá skráningu og greiðslu í félagið á staðnum. Húsnæðið er aðgengilegt fyrir fólk með hreyfihömlun. Aðrar aðgengisþarfir má senda á skrifstofa@gamli.samtokin78.is.