Stjórn þakkar kærlega öllum þeim félögum sem lögðu leið sína á félagsfund fyrr í kvöld og ræddu þar eftirfarandi áætlun. Hún er hugsuð sem beinagrind fyrir störf stjórnarinnar á komandi mánuðum. Að auki munu ýmis verkefni koma til sem erfitt er að tímasetja nákvæmlega að svo stöddu. Stjórn óskar eindregið eftir ábendingum félagsfólks um málefni og aðgerðir sem félagið þarf að taka sér fyrir hendur. Stjórn stefnir á að birta samantekt í lok hvers mánaðar þar sem gerð er grein fyrir stöðu þeirra verkefna sem hér eru tilgreind. Starfsáætlun stjórnar Samtakanna ’78 sept 2016 – mars 2017 september Samstilling stjórnar – hlutverk og ábyrgð stjórnarfólks Opnað á samtal félagsfólks og stjórnar Fundir og samtöl við sjálfboðaliða S78 Trúnaðarráð kemur saman, setur sér verklagsreglur og markmið Jólabingó – skipulag október Fyrsti sameiginlegi fundur trúnaðarráðs og stjórnar (6. okt) Félagsfundur (6. okt) Nefnda- og hópastarf byrjar Fræðslu- og kynningarfundur fyrir Alþingisframbjóðendur (17. okt) Stjórn hittir fulltrúa frá hagsmunafélögum nóvember Gagnger yfirferð á félagaskrá Vinnufundur stjórnar á Akureyri Stjórn hittir fulltrúa frá hagsmunafélögum Félagsfundur – kjörnefnd kosin, drög að fjárhagsáætlun kynnt Tekinn upp þráður í samskiptum við nýkjörið Alþingi desember Jólabingó (3. des í Vinabæ) Þorláksmessa á Suðurgötu Viðhorfskönnun út til félagsfólks Undirbúningur þjóðfundar – úrvinnsla gagna frá Samtakamættinum 2013 janúar Þrettándaball (6. janúar) Félagsfundur – kynning frá nefnd um hinsegin eldri borgara Undirbúningur þjóðfundar frh. – úrvinnsla viðhorfskönnunar Dagsetning aðalfundar auglýst febrúar Kynning á tillögum lagabreytinganefndar Þjóðfundur Aðalfundur boðaður mars Ráðstefna um margþætta mismunun ásamt Trans-Íslandi og Tabú (3.-4. mars) Aðalfundur Hér má nálgast starfsáætlunina á PDF-formi til niðurhals.