Fyrsta sunnudag í mánuði verða fjölskyldumorgnar í nýrri félagsmiðstöð Samtakanna´78 að Suðurgötu 3. Fyrsti hittingurinn verður því sunnudaginn 1. nóvember. Hittumst með börnin og spjöllum, leikum og borðum saman. Allir koma með eitthvað smá á morgunverðarhlaðborð.Frábær vettvangur til að hitta aðra foreldra og börn í hinsegin fjölskyldum. Þennan fyrsta sunnudag væri frábært ef einhverjir gætu tekið með sér eitthvað af leikföngum. Það er víst lítið til af svoleiðis í húsnæðinu enn sem komið er 😉 Hlökkum til að sjá ykkur! Félagsmiðstöðin er aðgengileg fyrir fólk með hreyfihömlun.