Tónleikar með tilgang 25. febrúar, 2014 6. mars ætla Samtökin ’78 & Amnesty International á Íslandi, ásamt nemum í tómstunda- og félagsmálafræði að standa fyrir styrktartónleikum. Á tónleikunum koma fram Hinsegin kórinn, Sigga Beinteins & Stjórnin, Páll Óskar og Retro Stefson. Tónleikarnir hefjast klukkan 20:00 í Hörpu og munu standa í um tvo tíma. Miðaverð verður 2000 kr og rennur allur ágóði óskiptur til hinsegin fólks í Úganda. Meiri upplýsingar berast á allra næstu dögum. Mannréttindi hinsegin fólks í Úganda eru fótumtroðin og fyrir liggur að frumvarp sem kveður á um lífstíðarfangelsi við samkynhneigð verði lögfest í landinu. Með því verður rótgróið hatur og mismunum gagnvart þeim sem eru eða teljast hinsegin, fest í sessi.Samtökin ´78 og Íslandseild Amnesty International styðja úgönsk grasrótarsamtök hinsegin fólks í mannréttindabaráttu þeirra fyrir réttindum sínum. Eftir að Amnesty bauð lesbísku baráttukonunni Köshu til Íslands í fyrra ákváðu Samtökin ´78 að hefja samstarf við baráttusystkini í Úganda. Tilgangur styrktartónleikana er að vekja athygli Íslendinga á stöðu hinsegin fólks í Úganda sem og að afla fjár fyrir grasrót hinsegin fólks í Úganda, svo þau geti hratt og örugglega unnið gegn frumvarpinu og opnað augu samlanda sinna fyrir hvaða afleiðingar það mun hafa í för með sér. Tíminn er naumur og nú verða allir að taka höndum saman til að koma í veg fyrir að þetta skelfilega frumvarp verði að lögum.