Til að tryggja opna og upplýsta umræðu um samstarfsverkefni Samtakanna ´78 og systursamtaka þeirra í Úganda boðar stjórn S´78 til annars félagsfundar í Regnbogasalnum laugardaginn 1. febrúar kl: 16:30. Áætlað er að fundurinn taki um 30 mínútur. Farið verður yfir verkefnið í heild sinni með sérstaka áherslu á fjáröflun og möguleg fjárútlát. Ekki láta þig vanta á þennan mikilvæga fund.