18. Stjórnarfundur 8. janúar, 2014 18. Stjórnarfundur S78 08.01.2014 Mætt: Stjórnarmennirnir Fríða Agnarsdóttir, Vilhjálmur Ingi Vilhjálmsson (Villi), Sigurður Júlíus Guðmundsson (Siggi), Anna Pála Sverrisdóttir (APS), Árni Grétar Jóhannsson (ÁG)(framkvæmdastjóri S78), Gunnar Helgi Guðjónsson (GHG)(Áheyrnarfulltrúi Trúnaðarráðs), Svandís Anna Sigurðardóttir (SAS) Fjarverandi: Guðrún Arna Kristjánsdóttir (GAK), Örn Danival Kristjánsson. Fundur settur: 17:32 1. Fundargerð síðasta fundar: Já, allir samþykkir 2. Fundarboð á aðalfund Fer í næsta fréttabréfi. Samhliða fer það inn á heimusíðu félagsins og fésbók. 3. Boð fyrir sjálfboðaliða Sjálfboðaliða-kvöldverður 14. febrúar. 4. Úganda (Gestur: Ásthildur Gunnarsdóttir úr alþjóðanefnd, 17.30) -Vinnan framundan. ATH taka mynd af stjórn með Ú-G-A-N-D-A skrifað á A4 blöð með sex regnbogalitum? Hugmyndafundur á sunnudaginn 12. janúar kl. 17:00. 5. Möguleg blaðaúttekt (APS) Er í vinnslu. Anna Pála ber ábyrgð á verkefninu. Umræður um umfjöllun Gylfa Ægis. 6. Jólaball, Aðventukvöld, Þorláksmessukósý (stutt yfirferð) Jólaball: frjáls framlög virka ekki. Taka inn að setja inn á heimasíðu og fréttabréf. Þorláksmessukósý: léleg mæting og mjög léleg mæting hjá stjórn og trúnaðarráði. 20 manns mættu. Aðventukvöld: Fólk mætti mjög seint. Mjög fáir mættu fyrst. 7. Beiðni um fund með félagsmálaráðherra Fengum svar. Fáum fund. Erum að bíða frekari fyrirmæla. 8. Skilaboð S78 vegna Rússlands og Indlands -hvenær á að senda út ályktanir? Rússlands ályktun: Árni er að skrifa upp ályktun. Koma uppkasti á trúnaðaráð. Hafa Rússlands ályktun tilbúna á undan og sem fyrst. Indland: Ályktun tilbúin. Búið að senda út og fá einhverjar athugasemdir til baka. 9. Ættleiðingamál -staðan Haldinn fundur með íslenskri ættleiðingu 7.1.2013. Guðrún Arna er að biðja um fund með félagsmálaráðherra hvað varðar ættleiðingu. 10. Fræðslumál -staðan á fræðslubæklingi og pælingar um heimasíðumál Heimasíðu/forum mál eru í skoðun. Einnig fræðslubæklingur. 11. Fundartími stjórnar Hugmynd um að færa hann til á þriðjudaga kl. 17:25. 12. Önnur mál HIV-Ísland Fara að taka skurk í forvarnar starfi. Breskur Activisti Var að fá upplýsingar hvernig Samtökin hafa tekið á málum. Norðurpólsmálið Of kalt inn á Samtökunum. Fundi slitið: 19:08Næsti fundur verður: Ef GAK og ÖDK samþykkja, þriðjudag 14. janúar kl. 17.30 Fundarritari: Villi