Samtökin ´78 standa fyrir opnu húsi á Menningarnótt undir yfirskriftinni SJÚDDÍRARÍGAY!! Ýmsar skondnar og skemmtilegar uppákomur munu eiga sér stað á okkar ylhýra opna húsi, allir velkomnir; hvers kyns eða kynhneigðar sem þeir gætu verið. Hver veit nema við fáum að kynnast því hvað raunverulega felst í sannri vináttu?? Geta heteróar áhommast?? Verða mannavarir málaðar?? Munu hinsegin ástarorð rituð á veggi sögunnar?? Ómar orðið „leg“ ?? Mun Fríða baka vöfflur?? Ekki missa af þessu hýra kvöldi húmors og lífsgleði 😉