Félagsfundur 15. nóvember, 2012 Fundur settur kl. 20:13 Guðmundur Helgason formaður Skipan fundarstjóra Ragnar Þorvarðarson skipaður fundarstjóri Dagskrárbreytingartillaga Lagt til að „Skipan kjörnefndar“ verði bætt inn sem fjórða lið á dagskrá, samþykkt. Fjárhagsáætlun næsta árs kynnt Gunnlaugur Bragi gjaldkeri fór yfir fjárhagsáætlun næsta árs Gert er ráð fyrir aukningu tekna og gjalda á árinu 2013 Áætlun gerir ráð fyrir rekstrarafgangi að upphæð 1.087.346 sem áfram mun greiða upp yfirdrátt í banka Farið yfir starfið á þessu ári Guðmundur Helgason formaður fór yfir starf Samtakanna ’78 á árinu Rætt um störf stjórnar og trúnaðarráðs Spurning úr sal varðandi störf og mikilvægi trúnaðarráðs. Mikilvægt að til trúnaðarstarfa veljist fólk sem vill vinna og leggja sitt af mörkum í þágu félagsins Hagsmunafélög ekki öll búin að skipa sína fulltrúa í trúnaðarráð Oft skortur á fólki sem tilbúið er að aðstoða við undirbúning og skipulagningu viðburða Á vormánuðunum skilaði stjórn S78 inn umsögn til Alþingis vegna frumvarps til laga um réttarstöðu einstaklinga með kynáttunarvanda. Lögin voru samþykkt og haldin fögnuður í húsakynnum Samtakanna ’78 og nokkru síðar bauð borgarstjóri til móttöku í Ráðhúsi Reykjavíkur Afhending mannréttingaviðurkenninga á opnunarhátíð Hinsegin daga, atriði í gleðigöngu og sala í miðborginni að henni lokinni Opið hús á menningarnótt í ágúst var vel sótt og gekk vel Viðburðir í desember: Jólabingó verður föstudaginn 7. Desember. Menningarkvöld verður laugardaginn 15. desember Kynning á nefndum sem stofnaðar hafa verið og verksviði þeirra Sigurður Júlíus Guðmundsson varaformaður kynnir Alþjóðanefnd Mannréttindavakt – með puttann á púlsinum á málefnum erlendis Samskipti við erlend félög og samtök Þarfagreiningar- og húsnæðisnefnd Nefndin aflar upplýsinga um verð og ástand núverandi húsnæðis, þá möguleika sem eru til staðar og munu leggja fram heildstæða kynningu á aðalfundi 2013 Ragnar Þorvarðarson fundarstjóri býður fram krafta sína í þágu nefndarinnar Nefnd um mannréttindaviðurkenningar Samtakanna ’78 Mun fjalla um framtíð viðurkenningarinnar, setja fram ferla er varða tilnefningar, val og afhendingu Starfshópur um ættleiðingar samkynhneigðra Hópur sem ætlað er að kanna stöðuna á ættleiðingamálum samkynhneigðra, kanna möguleika til að koma á samningum við lönd sem heimila ættleiðingar til samkynhneigðra og fleira Afmælisnefnd Vinnur að 35 afmælisviðburðum sem dreifast munu yfir 35 ára afmælisár Samtakanna ’78 Orðabókanefnd Óvirk nefnd Hugmyndin var að vinna Hinsegin orðabók með orðavali og leiðbeiningum um orðaval sem rétt og æskilegt er að nota þegar kemur að hinsegin fólki og þeirra málum Anna Kristjánsdóttir býður sig fram í Orðabókarnefnd Fræðslunefnd Ákveðið hefur verið að stofna fræðslunefnd sem fara mun yfir fræðslumál Samtakanna ’78 og leggja drög að stefnu í þeim málum Matthías Matthíasson og Sigríður Valdimarsdóttir bjóða sig fram í fræðslunefnd Skipan kjörnefndar Tillaga stjórnar: Árni Grétar Jóhannsson, framkvæmdastjóri S ’78, Anna Kristjánsdóttir, Íris Ellenberger Önnur framboð bárust ekki. Tillaga samþykkt. Kynning á hugmyndum varðandi afmælisárið 2013 Guðmundur Helgason kynnir hugmyndir sem fram komu á vinnufundi stjórnar og trúnaðarráðs er varða viðburði á afmælisárinu 2013 Hugmyndin er 35 misstórir viðburðir sem dreifast munu um árið. Viðburðirnir verða tengdir við regnbogalitina sem allir standa fyrir ákveðin þemu Rauður: líf (t.d. hinsegin fjölskyldur) – Appelsínugulur: „healing“ (t.d. heilsa) – Gulur: sólarljós (t.d. skemmtanir) – Grænn: náttúra (t.d. útivist og ferðalög) – Blár: eining (t.d. samvinna og sameining) – Fjólublár: andinn (bókmenntir, sögur og ljóð). Nefnd um afmælisár mun vinna áfram að viðburðum og skipulagningu ársins. Önnur mál Sigríður Valdimarsdóttir rithöfundur kom nýlega heim erlendis frá með stóra bókagjöf til bókasafns S ’78: Nefndi að S ’78 þyrftu að eiga PayPal reikning til að taka við fjárframlögum að utan Spyr varðandi alþjóðlegan dag gegn „hómófóbíu“ og hvort dagurinn sé viðurkenndur af íslenskum stjórnvöldum Spyr varðandi þjónustusamninga við sveitarfélög, hefur sjálf óskað eftir því við Grindavík að þeir geri meira fyrir LGBT fólk á sínu svæði. Áfram verður unnið að því að bjóða sveitarfélögum þjónustu Samtakanna ’78 Spyr varðandi útsendingar á tilkynningum um póstlista – skortur á fyrirvara. Reynt verður að senda tilkynningar með eins góðum fyrirvara og hægt er Svavar Gunnar Jónsson vekur máls á að Pink Iceland hafi í dag fengið nýsköpunarverðlaun Samtaka ferðaþjónustunnar. Fundurinn fagnar með lófataki. Fundi slitið kl. 21:22 Fundargerð ritaði: Gunnlaugur Bragi, gjaldkeri stjórnar S ’78