Lagabreytingar og þarfagreining 3. janúar, 2012 Samtökin ’78 auglýsa eftir áhugasömum einstaklingum í tvær nefndir á vegum félagsins; annarsvegar lagabreytinganefnd og hinsvegar þarfagreininganefnd. Lagabreytinganefnd myndi fara yfir lög félagsins og koma með tillögur að breytingum ef þurfa þykir fyrir aðalfund félagsins í mars næstkomandi. Þarfagreininganefnd myndi gera þarfagreiningu á húsnæðismálum félagsins sem og vera ráðgefandi fyrir stjórn varðandi þau mál. Bæði er óskað eftir sjálfboðaliðum í þessar nefndir sem og tillögum að hæfum einstaklingum sem félagið gæti sett sig í samband við. Umsóknar- og tillögufrestur er til og með 15. janúar 2012 og hægt að senda á tölvupóstfangið skrifstofa@gamli.samtokin78.is.