Félagsfundur 2. nóvember, 2011 Stjórn Samtakanna ’78 boðar til félagsfundar fimmtudaginn 17.nóvember klukkan 20-22 í Regnbogasal S78 að Laugavegi 3 Fundarefni: 1. Drög að fjárhagsáætlun – umræður 2. Starf Samtakanna ´78 það sem af er félagsári 3. Húsnæðismál Samtakanna ´78 Á fundinum gefst félagsmönnum þá færi á að koma með athugasemdir, hrós, ábendingar, knús og/eða aðrar tillögur til bóta. Þá má einnig bjóða fram krafta sína í þágu félagsins en eins og við vitum öll er megnið af starfi félagsins unnið af sjálfboðaliðum (þar með talið stjórnarstörf) Bestu kveðjur og vonandi sjáum við bara sem flesta á fundi Stjórnin