Mannréttindaverðlaun tilnefningar 3. maí, 2011 Mannréttindaverðlaun Samtakanna ´78 Á hverju sumri veita Samtökin ´78 mannréttindaverðlaun sín. Mannréttindaverðlaun Samtakanna ’78 er viðleitni félagsins til að þakka fyrir framlag í þágu jafnréttis og mannréttinda og eru veitt einum einstakling fyrir starf sitt innan Samtakanna 78, einstakling utan Samtakanna 78 og stofnun, opinberum aðila eða fyrirtæki. Samtökin ´78 óska nú eftir tilnefningum verlaunahafa frá félögum sínum. Allar tilnefningar sendist á netfangið skrifstofa@gamli.samtokin78.is Fyrri handhafar eru: Guðrún Ögmundsdóttir Margrét Pála Ólafsdóttir Reykjavíkurborg Böðvar Björnsson Sr. Bjarni Karlsson Siðmennt Heimir Már Pétursson Birna Þórðardóttir Fríkirkjan Þorvaldur Kristinsson Ingibjörg Sólrún Gísladóttir Hópur presta, djákna og guðfræðinga Frelsisverðlaun Samtakanna ´78; veitt 1995: Hörður Torfason Guðni Baldursson