Hýraugað leitar að fólki í ritnefnd 23. febrúar, 2011 Hýraugað, fréttabréf Samtakanna’78, auglýsir eftir fólki í ritnefnd. Allir sem hafa áhuga á að skrifa greinar og fréttir eru velkomnir, sem og þeir sem hafa áhuga á að lesa prófarkir, vinna að uppsetningu blaðsins, fyrirhugaðri heimasíðu eða aðstoða við útgáfu blaðsins á annan hátt – allt í sjálfboðavinnu að sjálfsögðu. Áhugasamir eru hvattir til að senda tölvupóst á hyraugad@gamli.samtokin78.is.